Hvatningarverðlaun Grindavíkurbæjar í fræðslumálum

  • Fréttir
  • 16. apríl 2021

Fræðslunefnd Grindavíkurbæjar auglýsir eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna. Fræðslunefnd hefur samþykkt að auka jákvæða umfjöllun um skólastarf og fræðslustarf í Grindavík með því að veita árlega hvatningarverðlaun í fræðslumálum.

Hvatningarverðlaunin eru hrós til þeirra sem hafa sýnt framúrskarandi vinnu í skólastarfi og fræðslustarfi í Grindavík. Þau eru einnig hugsuð sem staðfesting á að viðkomandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenningin nær til.

Auglýst er eftir tilnefningum að verkefnum innan Grindavíkurbæjar sem þykja skara fram úr og vera til eftirbreytni. Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, grunnskóla, tónlistarskóla, félagsmiðstöð og skólaseli í Grindavík.

Allir geta komið tilnefningu á framfæri með því að senda inn upplýsingar á netfangið ingamaria@grindavik.is fyrir 1. maí 2021.

Fræðslunefnd velur úr tilnefningum á fundi sínum og afhendir verðlaun í lok skólaársins.


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum