Gasmengun til norđurs í dag

  • Fréttir
  • 13. apríl 2021

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent út stöðuna vegna eldgoss á Reykjanesi fyrir daginn í dag, þriðjudaginn 13. apríl. Frá miðnætti til hádegis (00-12) eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir hádegi hafi þetta í huga.  

Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg.  Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum neðan þjóðvegar.
 
Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er rálagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.  Einnig getur verið yfirborðsmengun í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F).  Yfirborðsmengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina.
 
Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:
 
Spá veðurvaktar um veður og gasdreifingu í dag, þriðjudag:
Í dag er útlit fyrir sunnan 3-8 m/s og berst þá gasmengunin til norðurs, einkum yfir Vatnsleysuströnd og gæti þar náð styrk sem er óhollur fyrir viðkvæma.

Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið  reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook síðu lögreglu og á vedur.is, heimasíðu Veðurstofu Íslands.  
 
Svæðið er ekki fyrir lítil börn, þau eru viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því útsett fyrir skaðlegum lofttegundum.    

Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera.  
 
Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.

  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir