Ađgangur ađ gossvćđinu aukinn

  • Kvikufréttir
  • 9. apríl 2021

Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu um að búið sé að auka opnun á gossvæðinu. Aðgengi almennings að gossvæðinu er til kl. 21 í kvöld og rýming svæðis hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti  

Spá veðurvaktar um veður og gasdreifingu í dag.
Norðan og norðvestan 5-10 m/s í dag en hæg vestlæg eða norðvestlæg átt síðdegis og í kvöld með dálítilli snjókomu eða slyddu.  Nægilega hægur vindur svo uppsöfnun gass geti orðið hættuleg nærri gosstöðvum en ekki líklegt að mengunar verði vart í byggð.

Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
· Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
· Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.

· Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
· Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 20. mars 2025

Póstbox í Grindavík

Fréttir / 26. febrúar 2025

Ađalfundur Grindavík Experience

Fréttir / 24. febrúar 2025

Hér er íbúakönnun Maskínu

Fréttir / 20. febrúar 2025

Sundlaugin opin á laugardögum og mánudögum