Opiđ fyrir skráningu í Vinnuskóla Grindavíkur 2021

  • Fréttir
  • 18. mars 2021

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Vinnuskóla Grindavíkur í sumar. Vinnuskólinn er fyrir 14-17 ára ungmenni fædd árin 2004, 2005, 2006 og 2007, þ.e. fyrir 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla. 

Aðeins verður tekið við rafrænum skráningum og mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega. Einnig þarf að skila inn leyfisbréfi undirrituðu af forráðamanni í Þrumuna eða á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62. Skráningu lýkur föstudaginn 16. apríl. Skráning fer fram hér.

Vinnuskólinn býður fyrst og fremst upp á hefðbundin umhirðustörf. Hins vegar taka einstaka félög og stofnanir til sín nemendur sem þekkja vel til. Nemendur sinna þá aðstoð á leikjanámskeiðum eða umhirðu íþróttamannvirkja. Þá sinna nemendur einnig sértækum verkefnum ásamt umhirðustörfum.

Vinnutími og launakjör

14 ára, úr 8. bekk:
14. júní - 21. júlí 
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-12:00
Fjöldi vinnustunda 88
Laun: Kr. 1.007 á tímann með orlofi
Helstu verkefni: Þrif, rakstur og gróður umhirða og önnur tilfallandi verkefni.

15 ára, úr 9. bekk:
14. júní - 21. júlí 
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-12:00 og 13:00-15:30
Fjöldi vinnustunda 143
Laun: Kr. 1.258 á tímann með orlofi
Helstu verkefni: Gróðursetning, áburðargjöf, þrif, sláttur, rakstur og gróður umhirða. Aðstoð við leikjanámskeið og önnur tilfallandi verkefni
Auðlindaskólinn er í boði í lok júní. Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að.

16 ára, úr 10. bekk:
Tímabil: 14. júní – 6. ágúst (frí 27. júlí – 5. ágúst)
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-12:00 og 13:00-15:30. Föstudaga 8:00-12:00
Fjöldi vinnustunda: 173,5
Laun: Kr. 1.510 á tímann með orlofi
Helstu verkefni: Sláttur, rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun, aðstoð við leikjanámskeið og önnur tilfallandi verkefni.

17 ára, eftir 1. ár í framhaldsskóla:
Tímabil: 1. júní - 6. ágúst (frí 27. júlí – 5. ágúst)
Fjöldi vinnustunda: 250,5 
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-12:00 og 13:00-15:30. Föstudaga 8:00-12:00
Laun: Kr. 1.743 á tímann með orlofi
Helstu verkefni: Sláttur,rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun, aðstoð við leikjanámskeið og önnur tilfallandi verkefni.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!