Líkt og áður hefur komið fram hefur verið ákveðið að Menningarvikan sem að fram hefur farið undanfarin ár í Grindavík verði að Menningarvori. Menningarvor í Grindavík 2021 mun standa yfir í apríl í ár.
Grindvíkingar, fyrirtæki, stofnanir, þjónustuaðilar og allir þeir sem hafa áhuga á menningu eru hvattir til þess að skipuleggja menningarviðburði á þessum tíma og er það von skipuleggjenda að allir leggist á eitt við að bjóða uppá fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Dagskrá Menningarvorsins verður dreift í öll hús um mánaðmaótin mars/apríl. Til þess að komast að í prentaðri dagskrá þarf að senda upplýsingar um viðburði á netfangið eggert@grindavik.is, í síðasta lagi 15. mars nk.