51. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, 15. febrúar 2021 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Sigurveig Margrét Önundardóttir, aðalmaður,
Klara Bjarnadóttir, aðalmaður,
Sigríður Etna Marinósdóttir, formaður,
Margrét Kristín Pétursdóttir, varamaður.
Unnar Magnússon boðaði forföll.
Fundargerð ritaði: Kristín María Birgisdóttir, Upplýsinga- og markaðsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Loftlagsstefna Sveitarfélaga - 2012018
Fulltrúi frá Circular Solutions kom inn á fundinn í gegnum TEAMS og fór yfir ferlið varðandi umhverfis- og loftlagsstefnur sveitarfélaga. Nefndin óskar eftir kostnaðaráætlun í upphafskref vinnunnar sem er mikilvægisgreining.
2. Reykjanes - Góðar sögur - 2102015
Markaðsátakið Reykjanes - við höfum góða sögu að segja! Niðurstöður árlegrar viðhorfskönnunar lagðar fram til kynningar.
3. Íbúakönnun 2020 - Íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða - 2102091
Atvinnuþróunarfélögin, Byggðastofnun og landshlutasamtökin hafa gefið út skýrsluna Íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða. Nefndin fagnar því að Grindavíkurbær kemur vel út í langflestum þáttum könnunarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.