Hjónin Vilhjálmur Lárusson og Agnes María Pétursdóttir eru nýir rekstraraðilar á Sjómannastofunni Vör við Hafnargötu. Húsið hefur fengið töluverða yfirhalningu enda löngu tímabærar framkvæmdir að sögn Einars Hannesar Harðarsonar, formanns Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur en það er félagið sem á húsið og leigir út reksturinn. Vilhjálmur opnaði staðinn eftir endurbæturnar sl. föstudag með því að bjóða upp á hádegisverðarhlaðborð sem löngu er orðið þekkt á Vörinni en það var forveri hans, Jón Guðmundsson og eiginkona hans, Súsanna Joensen, sem ráku staðinn í áraraðir á undan Vilhjálmi. Þau buðu upp á hlaðborð í hádeginu alla virka daga. Vilhjálmur segist ætla að halda því áfram en auk þess munu verða einhverjar kvöldopnanir. Þá verður boðið upp á að horfa á leiki í enska boltanum á tjaldi auk þess sem þau Vilhjálmur og Agnes María ætla að leigja salinn út fyrir veislur.
Meðfylgjandi viðtal var tekið við Vilhjálm og Einar Hannes formann Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur á sunnudaginn var, stuttu fyrir bikarleikinn hjá Manchester United og Liverpool. Þeir tippuðu á leikinn en spáðu báðir sigri United-manna enda báðir gallharðir stuðningsmenn þess félags.
Við óskum Vilhjálmi og Agnesi til hamingju með nýjan rekstur!
Hér má finna Sjómannastofuna Vör á Facebook þar sem hægt er að nálgast matseðil vikunnar.
Hér er Instagram-síða staðarins.
Á meðfylgjandi mynd er Vilhjálmur ásamt eiginkonu sinni Agnesi Maríu og Lárusi Orra, yngsta syni þeirra en þau eiga 4 börn, Pétur Inga, Rakel, Tristan Orra og Lárus Orra.