Markmiđiđ ađ auka viđ menningarflóruna í Grindavík

  • Fréttir
  • 8. janúar 2021

Hlaðvarp eða podcast hefur í auknum mæli verið að ryðja sér til rúms enda tækjabúnaður ekki ýkja mikill sem þarf til; Tölva, hljóðnemi og nettenging. 

Í lok ársins fór Rödd unga fólksins af stað með nýtt hlaðvarp en fyrsti þátturinn fór í loftið í desember, en áður hafði birst kynningarþáttur. Þættirnir eru aðgengilegir bæði á Apple podcast og Spotify. Inga Fanney Rúnarsdóttir, er einn umsjónarmanna þáttarins og formaður Raddar Unga fólksins. 

"Markmið hlaðvarps unga fólksins er að auka við menningarflóruna í Grindavík. Ég, ásamt Sigríði Etnu, Bjarna Þórarni og Karín Ólu erum með yfirumsjón yfir hlaðvarpinu. Við ætlum að fá til okkar Grindvíkinga, unga sem aldna, í létt spjall um heima og geima. Hlaðvarpið ætti að gefa Grindvíkingum góða innsýn inn í líf viðmælanda og stefnan er á að gefa út þátt á ca. 3 vikna fresti", segir Inga Fanney.  

Inga Fanney segir hlaðvörp góða leið til heimildarsöfnunar fólks þar sem miklar upplýsingar koma fram á stuttum tíma. "Rödd unga fólksins hvetur alla, og þá sérstaklega Grindvíkinga, til að hlusta. Ef fólk er með hugmyndir af skemmtilegum viðmælendum þá má alltaf hafa samband við okkur", segir Inga Fanney að lokum en hér má finna Facebook síðu Raddar unga fólksins þar sem hægt er að koma hugmyndum á framfæri. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir