Öđruvísi ţrettándi í ár – Öryggisins vegna
Áratugum saman hafa púkar farið á kreik á þrettándanum í Grindavík og bankað upp á í heimahúsum. Í ár hvetur Grindavíkurbær foreldrar og forráðamenn til að halda upp á þrettándann með börnum sínum með öðru sniði. Veiran getur auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletir margir þegar gengið er milli húsa til að fá sælgæti.
Höldum áfram að vinna að því að halda smitum í lágmarki og komast á betri stað. Samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin!
Hugmyndir að öðruvísi þrettándagleði
- Búningar: Nú er tíminn fyrir grímur! Þrátt fyrir að þrettándinn verði með öðru sniði í ár má klæða sig upp og gera sér glaðan dag í Grindavík.
- Ratleikur: Hægt er að fara í ratleik eða fjársjóðsleit og láta krakka fá lista yfir hluti til að finna, t.d. jólasvein, skip, útikerti o.s.frv.
- Nammi: Eftir göngutúrinn eða að leik loknum fara litlu púkarnir heim og fá sælgæti að launum. Tilvalið að hafa kósí kvöldmat.
- Deila: Hægt er að deila öðru en sælgæti, t.d. deila gleðinni með myndum og myndskeiðum á samfélagsmiðlum.