Nú er árið 2020 senn á enda, jólin að ganga í garð með öðruvísi sniði en við þekkjum. Þegar ég horfi til baka og rifja upp byrjun ársins þá hefur þetta verið hreint ótrúlegt ár.
Byrjun ársins var nokkuð hefðbundin, ég fór til Englands á fótboltaleik ásamt nokkrum Grindvíkingum.
Hið frábæra þorrablót okkar haldið í lok janúar og var það stórkostleg skemmtun að venju. Morguninn eftir þorrablótið byrjaði þetta. Undirritaður var heima hjá sér og nokkuð ryðgaður út af dottlu eins og sagt er þegar síminn hringdi og boðað var til neyðarfundar hjá Almannavörnum. Framhaldið þekkjum við, jörð hefur skolfið undir okkur linnulaust á þessu ári.
Ég þarf ekki að fjölyrða mikið um Covid áhrifin, en vonandi þegar líður á árið 2021 fer lífið að verða svona eins og við þekktum það eða kannski bara betra. Vonandi getum við tekið þá reynslu og góðar nýjungar sem við höfum lært í Covid-inu og nýtt okkur áfram. Covid hefur kannski kennt manni að grasið er ekki alltaf grænna hinu megin. Kapphlaupið að ferðast út fyrir landsteinana eins og maður sé að missa af einhverju, þegar við búum á þessu dásamlega fallega landi eins og margir uppgötvuðu í raun í sumar.
Margir fóru í framkvæmdir heima hjá sér, pallar smíðaðir, dittað að skúrnum, íbúðir málaðar og margt fleira, sem hafði jafnvel setið á hakanum. Ekki er alltaf nauðsynlegt að keyra hingað og þangað á fundi, ég lærði á zoom og teams og hvað þetta nú allt heitir. Þó ekkert komi í veg fyrir að hittast þá er tæknin oft á tíðum frábær og getur sparað tíma og auk þess að bættum umhverfisáhrifum og kolefnisjöfnuði.
Verkefnin hjá okkur í bæjarstjórn hafa breyst töluvert á þessu ári, við bæjarfulltrúar höfum eflaust ekki getað ímyndað okkur hvaða verkefni biðu okkar á þessu ári. Með samheldni og góðu samstarfi þá sjáum við vonandi fram á að skila góðu búi áfram. Tekjufall Grindavíkurbæjar er þó umtalsvert, atvinnuleysi hefur aukist töluvert, en vonandi náum við okkur fljótt á skrið aftur. Bærinn er að fjárfesta í mörgum verkefnum og margt spennandi framundan.
En þá kemur að tilgangi þessa pistils og það er að segja og skrifa þetta stutta en mikilvæga orð
TAKK
Ég vil þakka öllum Grindvíkingum fyrir fórnfýsi, umburðarlyndi og samheldni þeirra á þessu ári.
TAKK leikskólakennarar og starfsfólk leikskólanna, grunnskólakennarar og starfsfólk skólans. Þessar stofnanir hafa margoft þurfa að snúa öllu á hvolf til að finna lausnir til að halda börnunum okkar í eins mikilli rútinu og hægt er. TAKK
Starfsfólk Víðihlíðar, TAKK fyrir að hlúa að foreldrum okkar, ömmum og öfum, langömmum og langöfum. Eins og sakir standa þá eruð þið nú um jólin þeirra fjölskylda. TAKK
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvar, TAKK fyrir að passa upp á börnin okkar og leyfa þeim að ærslast.
Hver gleymir snjónum sl. vetur? Starfsfólk áhaldahúss, TAKK fyrir að sjá til þess að við komumst áleiðis keyrandi eða gangandi.
Starfsfólk á bæjarskrifstofunni sem hefur skipt sér og aðlagast og sinnt öllu af mikilli fagmennsku og haldið stjórnsýslunni gangandi. TAKK
Ég er eflaust að gleyma fjölda manns sem hefur lagt sitt af mörkum við erfiðar aðstæður en ég þakka ykkur öllum fyrir. Ég þori varla að vitna í orð fyrrum þjálfara Grindavíkur, en geri það nú samt og segi “þolinmæði er dyggð”. Það verður svaka gaman hjá okkur þegar við komumst í gegnum þennan skafl.
Ég óska Grindvíkingum í sínum jólakúlum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Munum að þvo og spritta :)
Sigurður Óli Þórleifsson
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur