Consensa fyrir hönd Grindavíkurbæjar óskar eftir tilboðum í viðhaldsþjónustu á gatnalýsingarkerfi í eigu Grindavíkurbæjar. Gatnalýsingarkerfið samanstendur af dreifikerfi (strengir og tengiskápar), ljósastaurum og lömpum. Starfssvæðið er í landi Grindavíkur þ.e. þéttbýli innan Grindavíkur, Þórkötlustaðahverfis og Staðarhverfis samkvæmt yfirlitskorti.
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á úboðsvef eigi síðar en kl. 23:59 þann 8. desember 2020.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum.