Hringekja- stöđvavinna í 1.bekk

  • Grunnskólafréttir
  • 10. nóvember 2020

Nemendur í 1.bekk hafa verið mjög duglegir í skólanum. Á eftirfarandi myndum má sjá nemendur í svo kallaðri hringekju eða stöðvum. 
Fjölbreytt verkefni eru í boði, eins og að finna í og m orð í Fréttablaðinu, klippa bókstafina út og líma í bókstafapoka. Skoða stafadrátt bókstafanna og æfa sig í að skrifa þá. Para saman lág- og hástafi. Flokka myndir og orð á réttan stað. Finna algeng orð og byggja þau með stafakubbum ásamt því að lesa fyrir kennara. 

Eins og sjá má þá eru börnin í 1.bekk afar dugleg og áhugasöm. Það er þó líka mikilvægt að taka hreyfipásur og slær það alltaf í gegn að taka einn dans á milli vinnustunda. Nemendur fengu endurskinsmerki í gjöf frá Grindarvíkurbæ og þakka kærlega fyrir það.

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!