BMX brós heimsækja Grindvíkinga í dag, miðvikudaginn 1. júlí. Þríeykið hefur heldur betur slegið í gegn þegar þeir hafa mætt með kraftmiklar sýningar á Sjóarann síkáta. Að þessu sinni bjóða þeir ungum Grindvíkingum upp á námskeið sem endar með dúndur sýningu á hjólabrettasvæðinu við Hópskóla milli kl. 16 og 19.
Mikilvægt er að mæta með sín eigin hjól og hjálma. BMX, fjallahjól, hlaupahjól og önnur hjól eru leyfileg.