96. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal 10. júní 2020 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Irmý Rós Þorsteinsdóttir, formaður, Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, aðalmaður,
Alexander Veigar Þórarinsson, aðalmaður, Pétur Rúðrik Guðmundsson, varamaður, Jón Júlíus Karlsson, áheyrnarfulltrúi og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur - 2001080
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
2. Styrktarbeiðni vegna búnaðar til útsendinga íþróttakappleikja - 2005092
Lögð fram styrkbeiðni frá aðalstjórn UMFG vegna kaupa á búnaði til vefútsendinga. Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarráðs.
3. Hjóla- og gönguvika í Grindavík - 2005068
Lögð fram drög að dagskrá Hjóla- og gönguviku í Grindavík 24.-27. júní nk.
4. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2021 - 2006013
Auglýst var eftir starfsstyrkjum á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2021 þann 20. apríl sl. og rann umsóknarfrestur út 31. maí. Tvær umsóknir bárust. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
5. Hátíðarhöld 17. júní 2021 - 2006012
Drög að dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 17. júní lögð fram.
6. Leiksvæði í Selskógi - 2006015
Frestað til næsta fundar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30.