Eyþór Ingi verður á Fish House fimmtudagskvöldið 4. júní klukkan 20:00. Miðasala fer fram á staðnum og kostar miðinn 3900 krónur. Eigendur lofa miklu stuði og hvetja gesti til að koma og gera sér gott kvöld með góðum mat og ljúfum drykk. Hér sé um að ræða frábæran viðburð, tónlist og grín í bland.