Lausar eru til umsóknar stöður við leikskólann Laut. Sérkennslustjóra, deildarstjóra, leikskólakennara , þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá 12.ágúst næstkomandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
• Færni í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is
Endurnýja þarf eldri umsóknir. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2020.