Óskað eftir tilboði: Byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit viðbyggingar við Hópsskóla

  • Skipulagssvið
  • 23. mars 2020

Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í verkið: Byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit viðbyggingar við Hópsskóla.

Um er að ræða byggingarstjórn og framkvæmdareftirlit við 2. áfanga Hópsskóla sem er viðbygging við Hópsskóla í Grindavík. Áætlað er að viðbyggingin verði um 1100m² að stærð. 

Áætlað er að verktími eftirlitsaðila (byggingarstjóra og framkvæmdareftirlits) sé frá 1. júní 2020 til 1. október 2021. Gerðar eru ákveðnar kröfur um hæfi, þekkingu og reynslu og aðeins tilboð sem uppfylla þær kröfur verða metin gild. 

Verkið skal vinna samkvæmt útboðsgögnum og verkinu telst ekki lokið af hálfu eftirlitsaðila fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar í útboðsgögnum. 

Útboðsgögn verða afhent með tölvupóst frá og með 24. mars 2020 kl. 10:00. Beiðni um útboðsgögn skal senda á netfangið atligeir@grindavik.is.

Í tölvupóst skal koma fram nafn tengiliðs vegna útboðsins, netfang, símanúmer og nafn fyrirtækis.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir skal senda á netfangið: atligeir@grindavik.is Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila á netfangið atligeir@grindavik.is eigi síðar en kl. 10:00 þann 7. apríl 2020.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur en niðurstöður útboðs verða birtar á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Þá verður öllum bjóðendum send niðurstaða útboðs í tölvupósti. 

Skipulags- og umhverfissvið Grindavíkur


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum