Jæja nú er komið að ykkur kæru mömmur og ömmur að kíkja í kaffi til okkar í Lautinni en á föstudaginn 21.feb n.k. verður hið árlega mömmu og ömmukaffi kl.14:30-15:30.
Boðið verður upp á heimabakað brauð, hummus, álegg, ávexti, heitt súkkulaði með rjóma og kaffi.
Þema dagsins er blóm og væri gaman að sjá ykkur t.d. með blóm í hári, blómaspennu eða bara í litríkum fötum.
Hlökkum til að sjá ykkur :)