Nemenda- og Þrumuráð stóð fyrir ungmennafundi á sal skólans um óvissuástandið sem hefur verið í kringum Grindavík síðustu vikur. Gunnar Þorsteinsson fyrirliði Grindavíkur í knattspyrnu á kvöldin og jarðeðlisfræðingur hjá HS orku á daginn hélt frábæran fyrirlestur um eldgos og jarðskjálfta. Gunnar upplýsti nemendur um ástæðu landris og jarðhræringa í kringum bæinn. Ungmennin voru mjög áhugasöm og spurðu marga spurninga sem Gunnar svaraði af mikilli fagmensku. Í kjölfarið fór Guðbjörg skólastjóri yfir rýmingaráætlun skólans ef til kæmi neyðarrýming. Ungmennin voru almennt mjög ánægð með fundinn og töluðu um að hversu mikilvægt var fyrir þau að fá svör við spurningum sem snúa beint að þeim. Einnig fannst þeim frábært að fá útskýringar á atburðum síðustu vikna á þeirra máli, eins og þau orðuðu það sjálf.
Nemenda- og Þrumuráð vill þakka Gunnari sérstaklega fyrir komuna og fræðandi fyrirlestur sem og Þórunni Öldu náttúrufræði kennara fyrir sitt framlag til að gera fundinn að veruleika.