17 nemendur útskrifast frá Fisktćkniskóla Íslands í Grindavík

  • Kvikufréttir
  • 25. maí 2020

Þann 6.desember síðastliðinn voru útskrifaðir 17 nemendur frá Fisktækniskóla Íslands.  Útskriftin fór fram við hátíðlega athöfn í Kvikunni í Grindavík.


Útskrifaðir voru 4 fisktæknar, 11 gæðastjórar og tveir netagerðamenn. Fisktækniskóli Íslands er eini skólinn á landinu sem býður upp á nám í veiðarfæratækni og það er í fyrsta skipti í ár, sem skólinn útskrifar nemendur á því sviði, eftir að hann tók formlega yfir náminu á síðasta ári. Nám í gæðastjórunun er kennd í samstarfi við Sýni ehf, en umsjón með brautinni hefur Klemenz Sæmundsson. 18 nemendur luku námi á vorönn og hafa því alls 35 nemendur útskrifast á árinu af alls fimm brautum sérnáms á sviði veiða, vinnslu og fiskeldi.


Eftir afhendingu skírteina, hélt skólameistari ræðu og lagði áherslu á mikilvægi vel menntaðs fólks fyrir framtíð greinarinnar. Skólameistari lagði áherslu á að miklar breytingar eru störfum í veiðum og vinnslu og að forsenda þess að Íslendingar haldi forskoti sínu á þessu sviði er að mennta vinnuaflið. Að lokinni athöfn, þakkaði skólameistari starfsfólki, samstarfsaðilum skólans og stjórn fyrir samstarfið á árinu og boðið var til kaffisamsætis í Kvikunni. 

Um 60 nemendur stunduðu nám í skólanum á haustönn og þar af rúmlega helmingur í grunnámi í Fisktækni. Yfir tuttugu nemendur stunda nú nám í veiðarfæratækni (netagerð) og þá er framundan mikill vöxtur innan fiskeldis, en skólinn gerði í sumar samning við Arnarlax, Arctic Fish og Ice Fish um menntun starfsfólks í sjókvíum fyrirtækisins. Um 30 nemendur hófu nám í fisktækni með áherslu á fiskeldi -á Bíldudal í nóvember síðastliðnum og fleiri starfsmenn fyrirtækjanna bætast síðan við á næsta ári. Haldin voru fjölmörg námskeið fyrir starfsfólk í veiðum og vinnslu og sá skólinn m.a., um námskeið um Baader vélar fyrir áhafnir á skipum Brims. Framhald er á þessari starfsemi á næsta ári. 


Mikil auking er í umsóknum í nám við skólann og nú þegar svo til fullskipað í nám í Marel-vinnslutækni og gæðastjórnun, sem hefst nú í janúar 2020. Þá er stefnt á nám í Fisktækni bæði á Ísafirði og Akureyri á næsta ári í samstarfi við fræðsluaðila í héraði á hvorum stað. Framundan er fjöldi verkefna fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi auk verkefna á sviði þróunarsamvinnu (m.a. í Vietnam í samstarfi við Marel) og útlit fyrir mikinn vöxt í námskeiðahaldi á sviði veiða, vinnslu og fiskeldis víða um land.


Nú í desember er tekið á móti umsóknum og skráningu á vorönn 2020 og eru áhugsamir hvattir til að sækja um sem allra fyrst á heimsíðu skólans: www.fiskt.is eða hafa samband við skrifstofu í síma 412 5965



 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir