Nú þegar Sjóaranum síkáta er lokið leitar Grindavíkurbær til íbúa og annarra gesta til þess að kanna viðhorf til hátíðarinnar. Grindvíkingar og aðrir gestir hátíðarinnar eru hvattir til þess að taka þátt í könnuninni, sem tekur 3-5 mínútur að svara. Þannig fæst skýr mynd af viðhorfi til hátíðarinnar sem nýtist til þess að þróa hana áfram á næstu árum. Öll svör eru nafnlaus og órekjanleg. Könnunina má nálgast hér.