56. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 13. maí 2019 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu: Guðmundur L. Pálsson, formaður, Ólafur Már Guðmundsson, aðalmaður, Anton Kristinn Guðmundsson, aðalmaður, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður.
Fundargerð ritaði: Sigurður Ólafsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030. - 1501158
Hagsmunaaðilar mættu á fund Skipulagsnefndar Grindavíkurbæjar vegna endurskoðunar Aðalskipulags Grindavíkurbæjar 2010 - 2030. Frá Reykjanesfólkvangi kom Óskar Sævarsson og frá Reykjanes GeoPark kom Daníel Einarsson og mættu þeir kl. 16:15 inn á fund skipulagsnefndar. Hagsmunaaðilarnir Kjartan Sigurðsson og Jakob Sigurðsson frá 4x4 Fjórhjólaævintýri ehf mættu kl. 17:00. Þessir hagsmunaaðilar fengu kynningu frá Brynju Dögg Ingólfsdóttur skipulagsfræðingi frá verkfræðistofunni EFLU, vegna vinnu við endurskoðun Aðalskipulagsins. Efni kynningarinnar var Stígar og slóðar. Fundurinn var haldinn vegna samráðs milli Grindavíkurbæjar og hagsmunaaðila. Í framhaldi að lokinni kynningu Brynju Daggar voru ýmsar tillögur og hugmyndir ræddar nánar milli aðila.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.