Íbúđ laus til umsóknar í Víđihlíđ

  • Fréttir
  • 7. maí 2019

Laus er til umsóknar u.þ.b. 50 fm íbúð nr. 202 á 2. hæð við Austurveg 5. 
Forsenda þess að geta sótt um íbúðina er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði: 
a. Umsækjendur um íbúðir skulu hafa náð 72 ára aldri. 
b. Umsækjandi skal hafa átt lögheimili samfellt í sveitarfélaginu í 12 mánuði. 
c. Umsækjandi sé í þörf fyrir félagslega aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili.

Heimilt er að veita undanþágur frá ofangreindum skilyrðum við ákveðnar aðstæður samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar sem nálgast má í heild sinni hér.

Áætlað verð íbúðarréttar er kr. 3.575.639,- og áætluð mánaðarleg leigugreiðsla í upphafi leigutíma er kr. 138.215,-.  Ef umsækjandi á ekki handbæra þá fjárhæð sem nemur íbúðarréttinum getur hann sótt um undanþágu til bæjarráðs frá greiðslu íbúðarréttarins. Ef undanþága er veitt af greiðslu íbúðarréttar að hluta eða öllu leyti greiðir leigutaki hærri leigu.

Frestur til að leggja inn umsókn er tvær vikur eða til og með 20. maí nk. Félagsmálanefnd Grindavíkur úthlutar íbúðinni á grundvelli mats á þörfum umsækjenda og er m.a. horft til andlegra, líkamlegra, fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna umsækjenda, auk húsnæðisaðstæðna. Íbúðin er laus til afhendingar 1. júní nk.

Til að leggja fram umsókn um íbúðina þá smelltu hér.  

Eingöngu er tekið á móti rafrænum umsóknum á netfangið midgardur@grindavik.is.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir