Feðginin Dagbjartur Willardsson og Guðrún Lilja Dagbjrtsdóttir halda tónleika annað kvöld, 5. apríl í Grindavíkurkirkju. Þar verða fluttar ýmsar perlur dægurlaga, bæði íslensk sem erlend. Hópur frábærra tónlistarmanna mun spila undir. Pálmi Sigurhjartarson á píanó. Pétur Valgarð Pétursson á gítar. Sigmar Þór Matthíasson á bassa og Halldór Lárusson á trommur. Um hljóðstjórn sér svo grindvíkingurinn Hafþór Karlsson (Haffi Tempó). Notaleg kvöldstund sem hentar öllum aldurshópum. Verð: 2000kr.