Dagskrá Menningarviku sunnudaginn 17. mars - Alcina og Heimskringla

  • Menningarfréttir
  • 17. mars 2019

Menningarviku lýkur í dag með tónleikum Bertu Drafnar Ómarsdóttur í Víðihlíð og Grindavíkurkirkju. Sýningarnar í Kvikunni, Kvennó og Framsóknarsalnum verða að sjálfsögðu opnar. 

Dagskrá Menningarviku 17. mars

14:00 Víðihlíð, HEIMSKRINGLA. Berta Dröfn Ómarsdóttir flytur íslensk sönglög úr Heimskringlu eftir Þórarinn Eldjárn og Tryggva M. Baldvinsson.

16:00 Grindavíkurkirkja, ALCINA OG HEIMSKRINGLA. Berta Dröfn Ómarsdóttir flytur óperuaríur úr Alcina eftir Händel og íslensk sönglög úr Heimskringlu eftir Þórarinn Eldjárn og Tryggva M. Baldvinsson.

Dagskrá Menningarviku alla dagana

10:00-17:00 Kvikan, SALTFISKSETRIÐ, JARÐORKA OG GUÐBERGSSTOFA. Grunnsýningar Kvikunnar opnar gestum.

10:00-17:00 Kvikan, SJÁLFSMYNDIR Á DRAUMASTAÐNUM. Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Grindavíkur sýna verk sín sem unnin voru í myndment og textílment.

10:00-17:00 Kvikan, KÆRLEIKUR. Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna unnin í samstarfi við Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur, myndhöggvara.

10:00-17:00 Verslunarmiðstöðin Víkurbraut 62, BÆJARBÓT. Áhugaverðar fréttir úr Bæjarbót, bæjarblaði Grindvíkinga sem að kom út á árunum 1982-1996, rifjaðar upp (lokað á sunnudögum).

13:00-16:00 Kvennó, SKIPSSTRÖND OG STRANDMINJAR. Sýning á munum sem tengjast skipsströndum í nágrenni Grindavíkur auk þess sem sagt er frá strandminjum í myndum og máli.

14:00-16:00 Framsóknarhúsið, #GRINDAVIKVETUR. Sýning á ljósmyndum grindvískra ljósmyndara sem tóku þátt í ljósmyndaleik grindavik.is.

Dagskrá Menningarviku má finna í heild sinni hér. Dagskránna er jafnframt að finna í Járngerði sem dreift var í öll hús í vikunni.


Deildu ţessari frétt