Dagskrá Menningarviku ţriđjudaginn 12. mars - Ari Eldjárn og Síđasti bćrinn í dalnum

  • Menningarfréttir
  • 12. mars 2019

Ari Eldjárn mætir til Grindavíkur í kvöld og sýnir í sal Grunnskólans kl. 20:30. Þá sýnir Minja- og sögufélag Grindavíkur hina sígildu kvikmynd Síðasta bæinn í dalnum í Bakka kl. 19:30. Auk þess eru sýningar opnar í Kvikunni, Kvennó, Framsóknarsalnum og Verslunarmiðstöðinni. 

Dagskrá Menningarviku 12. mars 

19:30 Bakki, SÍÐASTI BÆRINN Í DALNUM. Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir á sýningu á þessari sígildu kvikmynd frá árinu 1950. Athugið að sætapláss er takmarkað.

20:30 Grunnskólinn Ásabraut, ARI ELDJÁRN. Ungmennaráð Grindavíkur stendur fyrir uppistandskvöldi. Miðaverð 1.500 kr.

Dagskrá Menningarviku alla dagana

10:00-17:00 Kvikan, SALTFISKSETRIÐ, JARÐORKA OG GUÐBERGSSTOFA. Grunnsýningar Kvikunnar opnar gestum.

10:00-17:00 Kvikan, SJÁLFSMYNDIR Á DRAUMASTAÐNUM. Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Grindavíkur sýna verk sín sem unnin voru í myndment og textílment.

10:00-17:00 Kvikan, KÆRLEIKUR. Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna unnin í samstarfi við Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur, myndhöggvara.

10:00-17:00 Verslunarmiðstöðin Víkurbraut 62, BÆJARBÓT. Áhugaverðar fréttir úr Bæjarbót, bæjarblaði Grindvíkinga sem að kom út á árunum 1982-1996, rifjaðar upp.

13:00-16:00 Kvennó, SKIPSSTRÖND OG STRANDMINJAR. Sýning á munum sem tengjast skipsströndum í nágrenni Grindavíkur auk þess sem sagt er frá strandminjum í myndum og máli.

14:00-16:00 Framsóknarhúsið, #GRINDAVIKVETUR. Sýning á ljósmyndum grindvískra ljósmyndara sem tóku þátt í ljósmyndaleik grindavik.is.

Dagskrá Menningarviku má finna í heild sinni hér. Dagskránna er jafnframt að finna í Járngerði sem dreift var í öll hús í vikunni.


Deildu ţessari frétt