PMTO námskeið verður haldið í Grindavík frá 19. febrúar til 9. apríl. PMTO námskeið er fyrir foreldra 4-12 ára barna, sem vilja nýta hagnýtar aðferðir í uppeldinu undir leiðsögn reyndra aðila. Foreldrar læra aðferðir til að draga úr hegðunarerfiðleikum barns og stuðla að góðri aðlögun þess með því að:
Nota skýr fyrirmæli
Hvetja börn til jákvæðrar hegðunar
Nota jákvæða samveru og afskipti
Setja hegðun barna mörk
Rjúfa vítahring í samskiptum
Vinna með tilfinningar og samskipti
Hafa markvisst eftirlit
Leysa ágreining
Hafa markviss tengsl heimilis og skóla
Námskeiðið verður haldið hjá skólaþjónustu 3. hæð á bæjarskrifstofunni
Þriðjudaga kl. 17:00-19:00 í átta skipti sem hefst 19. febrúar og lýkur 9. apríl.
Þátttökugjald er kr. 12.500 fyrir fjölskyldu. Innifalin eru námskeiðsgögn og veitingar.
Upplýsingar og skráning: ingamaria@grindavik.is
Leiðbeinendur: Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræðingur og PMTO meðferðaraðili og Sigrún Pétursdóttir ráðgjafi og PMTO meðferðaraðili.