1500. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 20. nóvember 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi og Marta Sigurðardóttir, varamaður fyrir Pál Val Björnsson.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem fyrsta mál á dagskrá.
1811062 - Úttekt á rekstri sjávarútvegs á Austurlandi, Grindavík og Vestmannaeyjum.
Samþykkt samhljóða
Dagskrá:
1. Úttekt á rekstri sjávarútvegs á Austurlandi, Grindavík og Vestmannaeyjum - 1811062
Til fundarins voru mættir Heiðar Hrafn Eiríksson, Gunnar Tómasson og Pétur Pálsson.
Skýrsla Deloitte vegna úttektar á rekstri sjávarútvegs á Austurlandi, Gríndavík og Vestmannaeyjum lögð fram.
2. Fundartímar nefnda og aðkoma sviðsstjóra - 1811053
Sviðsstjórar Grindavíkurbæjar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið rætt við sviðsstjóra.
3. Fjárhagsáætlun - Málaflokkur 025 - 1810040
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu vísað í bæjarráð af hálfu félagsmálanefndar. Kallað eftir stefnumótun í þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leita til utanaðkomandi sérfræðings til að meta þjónustuna og koma með tillögur.
4. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi - 1810021
Listi yfir 17 umsækjendur lagður fram.
5. Kerfisstjóri Grindavíkurbæjar - uppsögn á starfi - 1811051
Guðmundur Hjálmarsson hefur sagt starfi sínu lausu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.
6. Knattspyrnudeild UMFG - beiðni um styrk til fasteignakaupa - 1811058
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir styrk til kaupa á húsnæði fyrir leikmenn.
Bæjarráð óskar eftir að formaður deildarinnar mæti á næsta fund bæjarráðs.
7. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2019 - 1811060
Drög að þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:20.