459. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, miðvikudaginn 4. júlí 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Ómar Davíð Ólafsson formaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Gunnar Ari Harðarson aðalmaður, Bergþóra Gísladóttir aðalmaður, Páll Gíslason aðalmaður og Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri.
Dagskrá:
1. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda - 1612032
Hafnarstjórn tekur vel í erindið og óskar eftir viðauka að upphæð 900.000 kr á fjárhagsáætlun 2018.
2. Miðgarður: Þekja - 1802030
Hafnarstjórn felur hafnastjóra að fá samþykki fyrir veituhús og ljósamöstur hjá viðeigandi lóðarhöfum við Miðgarð. Hafnarstjórn leggur til að heitavatnslögn verði líka lögð í vesturhluta þekjunnar. Hafnarstjórn leggur til að öðru leyti að verkið verði boðið út miðað við forsendur í framlögðum teikningum.
3. Fundargerðir: Hafnasamband Íslands 2018 - 1805019
Fundargerðin lögð fram
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.