Lautarbörn taka þátt í Sjóarnum síkáta í ár líkt og fyrri ár en á miðvikudaginn var farið með listaverk sem við unnum öll saman að í leikskólanum og sett upp á grindverkið á móti Nettó. Við erum skóli á grænni grein og því var tilvalið að nýta ónýta gardinu sem grunn fyrir listaverkið.