Fjölskylduratleikurinn með breyttu sniði í ár - nú á Instagram og hurðalaus!

  • Sjóarinn síkáti
  • 31. maí 2018

Ekki verður í boði að leita að hurðum og þekkja á Sjóaranum síkáta þetta árið en í staðinn verður boðið upp á nýjan og örlítið öðruvísi ratleik. Í stað þess að leita að hurðum um allan bæ ætlum við að bjóða upp á "selfie" ratleik. Leikurinn gengur þannig fyrir sig að við birtum hér myndir af fjórum nokkuð auðþekktum stöðum í Grindavík og það eina sem þið þurfið að gera er að leita þessa staði upp og taka "selfie", eða sjálfu, með sama bakgrunn og er á þessum myndum, pósta á Instagram og merkja með myllumerkinu #sjoarinnsikati2018

Dregið verður úr merktum myndum í hádeginu þriðjudaginn 5. júní en til þess að eiga möguleika á vinningi þarf að taka mynd á öllum fjórum stöðunum. 

Vinningarnir eru ekki af verri endanum.

1. sæti - Út að borða fyrir 2 á LAVA restaurant við Bláa Lónið
2. sæti - Út að borða fyrir 2 á LAVA restaurant við Bláa Lónið
3. sæti - Út að borða fyrir 2 hjá höllu
4. sæti - Saltfiskur frá Þorbirni

Staðirnir sem um ræðir má sjá bæði hér að ofan sem og hér fyrir neðan:


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokað fyrir kalt vatn á Baðsvöllum í dag

Fréttir / 23. janúar 2026

Dale Carnegie námskeið fyrir fullorðna

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffið verður næst 12. janúar