Söguratleikur Sjóarans síkáta kominn upp

  • Sjóarinn síkáti
  • 31. maí 2018

Söguratleikur Sjóarans síkáta 2018 er kominn upp og geta söguþyrstir Grindvíkingar sem og aðrir gestir nú skundað af stað og leitað uppi vísbendingar hér í kringum Grindavík. Ratleikurinn er auðveldur og skemmtilegur útivistarleikur, sem stendur frá upphafi Sjóarans síkáta fram að Jónsmessu. Leitað er að  spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskortið eða vísað á þá. Kortið og lausnarblað má finna á bls. 15 í dagskrá Sjóarans síkáta en einnig má prenta út eintak hér að neðan.

Fjöllin eða fellin í Grindavík eru fremur lág móbergsfjöll en setja þó mikinn svip á umhverfið. Öll munu þau hafa orðið til við gos undir jökli og ekki eldri en frá því seint á síðustu ísöld. Ratleikurinn vísar á nokkur slík fjöll. Fróðleikurinn byggir á tilgátum en stuðst er við sagnir, örnefnalýsingar og munnmæli fólks í Grindavík. Höfundur ratleiks er Sigrún Jónsd. Franklín

Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblaðið og skila því í Kvikuna ekki síðar en 22. júní. Dregið verður úr réttum lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 23. júní. Veglegir vinningar í boði!

Vinsamlegast látið vita ef spjöld finnast ekki eða hafa verið færð úr stað í Kvikuna s. 420 1190.

Söguratleikur Sjóarans síkáta 2018 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 15. apríl 2025

Vorferđ FebG í Ţórsmörk 21.maí 2025

Fréttir / 15. apríl 2025

Alli á Eyri og páskaegg í Kvikunni

Fréttir / 14. apríl 2025

Sundlaugin lokuđ í dag - Opiđ á morgun

Fréttir / 4. apríl 2025

Opiđ til Grindavíkur

Fréttir / 3. apríl 2025

Ađgengi takmarkađ til Grindavíkur

Fréttir / 1. apríl 2025

Eldgos hafiđ rétt norđur af Grindavík