Atvinna - Liðveitendur óskast 

  • Fréttir
  • 18. maí 2018

Félagsþjónustu- og fræðslusvið Grindavíkurbæjar auglýsir eftir traustum einstaklingum til að sinna starfi liðveitanda í tímavinnu. Að vera liðveitandi er gefandi og skemmtilegt starf sem hentar vel námsfólki. Markmið almennrar liðveislu er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun hins fatlaða einstaklings. Hlutverk liðveitanda er mjög fjölbreytt og snýr meðal annars að því að virkja viðkomandi í athöfnum daglegs lífs og veita honum aðstoð til að njóta menningar og félagslífs. Liðveitandi aðstoðar viðkomandi að setja sér markmið sem snýr að því að rjúfa félagslega einangrun, auka virkni og þjálfun með það að leiðarljósi að viðkomandi verði sýnilegur í samfélaginu á sínum eigin forsendum. Ef þú vilt tilheyra skemmtilegum hópi og veita góðan félagsskap með þinni nærveru þá er starf liðveitanda mjög gefandi og skemmtilegt. Um óreglulegan vinnutíma er að ræða. Allir umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og er æskilegt að viðkomandi sé með bílpróf.

Vert er að geta þess að þeir umsækjendur sem stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja gefst kostur á að fá einingar fyrir það að sinna starfi liðveitenda. Hver eining miðast við ca. 20 klst. á hverja önn.

Nánari upplýsingar veitir Stefanía Jónsdóttir í síma 426-8014 eða á netfanginu stefania@grindavik.is


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum