Vel var mætt á Króniku - Grindavíkursögur, sem haldin var á Bryggjunni síðastliðið fimmtudagskvöld. Þar voru mættir fræðimennirnir Birna Bjarnadóttir og Már Jónsson til að kynna bækur sínar og lesa upp. Birna kynnti verk sitt Heiman og heim, sem er safn greina um skáldskap Guðbergs Bergssonar og þýðingar en Már kynnti nýútkomna bók sína, Þessi sárafátæka sveit, sem hann gaf út í samvinnu við Grindavíkurbæ.
Már Jónsson sagnfræðingur og Alli á Eyri
Már opnaði kvöldið með léttri kynningu á sinni bók og fór yfir tildrög hennar og efnistök, en bókin er unnin uppúr opinberum skrám sýslumanna um eftirlátnar eigur Grindvíkinga á árunum 1773-1824. Bókin veitir ómetanlega innsýn og þekkingu á lífsháttum íbúa í Grindavíkurhreppi, sem bjuggu margir hverjir við kröpp kjör á þessum árum, eftir að verslun í plássinu lagðist af og útgerð Skálholtsbiskupsstóls naut ekki lengur við. Bókin er nú til sölu á Bókasafni Grindavíkur, og kostar 3.200 kr.
Aðalgeir Jóhannsson, staðarhaldari á Bryggjunni, tók svo við keflinu frá Má og las upp úr bókinni valdan kafla, en Alli las einnig sögu eftir sjálfan sig áður en kvöldinu lauk.
Bók Birnu er óútkomin en hún las engu að síður upp úr henni. Svo steig sérstakur leynigestur á svið sem ekki var getið í auglýstri dagskrá, en það var Guðbergur sjálfur. Las hann drykklanga stund smásögu eða bókarkafla fyrir gesti, sem hlýddu á með mikilli athygli. Erfitt er að segja nákvæmlega til um hvort um sögu eða bókarkafla var að ræða, því Guðbergur hóf lestur án kynningar, og lauk honum án afkynningar. En hvað sem því líður fengu gestir þarna óvæntan glaðning og urðu vitni að sjaldgæfum menningarviðburði.
Undir lok kvöldsins var Guðbergur kominn í símann. Ekki er ósennilegt að hann hafi verið að skoða kattamyndir á internetinu.