Minja- og sögufélag Grindavíkur ætlar að sýna kvikmyndina „Ég man þig“ sem byggð er á samnefndri bók eftir Yrsu Sigurðardóttur. Myndin verður sýnd föstudagskvöldið 16.mars kl. 20:00.
Kvikmyndin var að miklu leyti tekin upp í Bakka og er því sannarlega við hæfi að enda Menningarviku Grindavíkur á því að sýna þessa mögnuðu mynd í drungalegu, en flottu húsi. Hvetjum sem flesta til að mæta og kostar 500 kr inn. Mun allur ágóði sýningarinnar fara í að halda áfram að byggja upp þetta sögulega hús.