Skáli

  • Laut
  • 15. október 2019

Fagstjóri á Akri er : Dagný Rut Ólafsdóttir

Hver nemandi í Laut fer einu sinni í viku í listaskála - Skála. Hver heimastofa sendir einn hóp á dag þar sem unnið er að ýmiskonar sköpun.

Leitast er við að börnin fái tækifæri til þess að kynnast fjölbreyttum efnivið til listsköpunar. Unnið er með endurnýtanlegt og náttúrulegt efni s.s. ceriospakka,pappírshólka ofl.
Ýmist koma börnin með það að heiman en einnig er notað það sem til fellur í leikskólanum sjálfum.
Börnin fara gjarnan í gönguferðir og finna sér efnivið sem þau vinna síðan með í listaskála.
Í listaskála er lögð áhersla á að skapa þægilegt andrúmsloft og að barnið fái góðann tíma til þess að vinna að því sem það er að gera hverju sinni.

Leikskólanemendur hafa mikla þörf fyrir að tjá sig í myndmáli. Því er mikilvægt að þau fái tækifæri til að teikna, mála, móta og nota ýmis efni sem þátt í skapandi starfi og tjáningu. Markmiðið er að börnin fái tækifæri til að nota skynfæri sín, við upplifun mynd og handmennta (snerta, þreifa, bragða, lykta, sjá og hlusta). Að börnin fái að þroska og þjálfa sköpunarhæfileika sína til að efla jákvæða sjálfsmynd. Að börnin fái tækifæri til að vinna í hóp og efla þannig félagsþroska sinn og læri að bera virðingu fyrir hugmyndum og verkum annarra barna.

Æskilegt er að börnin komi í listsköpunarfötum þegar þau fara í Skála.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR SÍĐUR