Fundur 447

  • Hafnarstjórn
  • 20. desember 2016

447. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, mánudaginn 12. desember 2016 og hófst hann kl. 17:00.


Fundinn sátu:
Ómar Davíð Ólafsson formaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður, Gunnar Harðarson aðalmaður, Kristín María Birgisdóttir varamaður, Magnús Andri Hjaltason varamaður og Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri.

Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri.


Dagskrá:

1. 1610034 - Miðgarður uppbygging: Útboðsgögn
Hafnarstórn leggur til að bæjarstjórn samþykki tilboð Hagtaks í endurbyggingu Miðgarðs 2017. Tilboð Hagtaks hljóðar upp á 283.625.000 kr sem er um 71,3% af kostnaðráætlun Siglingasviðs Vegagerðarinnar.

2. 1612018 - Fjármögnun Miðgarðs: Fjárlagafrumvarp 2017
Hafnarstjórn harmar ef draga á úr fjárframlögum til Hafnabótasjóðs í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017. Verði það niðurstaðan lýsir hafnarstjórn yfir miklum áhyggjum af framgangi hafnarframkvæmda við Miðgarð sem byrjað var á fyrr á þessu ári. Eftirfarandi bréf var sent fjárlaganefnd Alþingis.

Alþingi, fjárlaganefnd Alþingis
Kirkjustræti
150 Reykjavík
Grindavík, 12.12.2016
nr. erindis 1612018 SAK


Varðar: Fjárlagafrumvarp 2017 vegna uppbyggingar Grindavíkurhafnar

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017 eru áætlaðar 212,4 milljónir króna í Hafnabótarsjóð. Í Samgönguáætlun 2015-2018 sem ríkisstjórnin lagði fram 18. mars 2016 voru áætlaðar 752 milljónir króna í Hafnarbótasjóð árið 2017. Meirihluti Umhverfis - og Samgöngunefndar lagði til breytingatillögu um að hækka framlög í Hafnarbótasjóð í 1.158 milljónir fyrir árið 2017 sem samþykkt var í Alþingi 12 október 2016. Siglingasvið Vegagerðarinnar og Grindavíkurhöfn hafa undanfarin ár unnið við undirbúning og hönnun á Miðgarði í samræmi við ofangreindar áætlanir. Þar að auki hefur hafnarstjórn stuðst við nefnadarálit meirihluta fjárlaganefndar við fjárlög árið 2016, sem var samþykkt á Alþingi 19. desember 2015. Þar kemur skýrt fram að átak í endurnýjun á stálþilum taki allt að þrjú ár.
Hafnarstjórn hefur í góðri trú, og í samvinnu við Siglingasvið Vegagerðarinnar, þegar keypt stálþilið og boðið út niðurrekstur á því. Þann 28 nóvember síðastliðinn voru tilboð opnuð og átti verktakafyrirtækið Hagtak hf. lægsta tilboðið. Tilboð Hagtaks hljóðar upp á 283.625.000 kr. eða 71,3% af kostnaðaráætlun hönnuða Siglingasviðs Vegagerðarinnar, sem verður að teljast mjög hagstætt tilboð. Ljóst er að ríkið og Grindavíkurhöfn munu skapa sér skaðabótakröfu af hálfu verktaka ef verkinu verður frestað. Hafnarstjórn Grindavíkur vill standa við gerða samninga.

Úr Nefndaráliti meirhluta fjárlaganefndar um hafnarframkvæmdir árið 2015
"Meiri hlutinn gerir tillögu um 400 milljóna kr. viðbótarfé í Hafnabótasjóð til endurnýjunar á bryggjum og dýpkunar í löndunarhöfnum. Frá árinu 2008 hefur endurbyggingu bryggja lítið verið sinnt en þónokkrar bryggjur í löndunarhöfnum eru orðnar hættulegar þar sem burðargeta þeirra er ekki lengur nægjanleg. Oftast er um að ræða stálþilsbryggjur þar sem efnisþykkt þils var í upphafi um 10 mm en vegna tæringar er þykkt þils komin niður í um 2,4 mm meðalþykkt við stórstraumsfjöruborð. Það þýðir að þilin eru mjög götótt á köflum sem gerir það að verkum að komi fullt álag á þessar bryggjur eða hreyfing á jarðveginn, t.d. vegna jarðskjálfta, eru verulegar líkur á að þær gefi sig. Allar bryggjurnar eru enn í fullri notkun þrátt fyrir að teljast hættulegar að mati Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdatími samkvæmt tillögunni verði 1-3 ár. Gera má ráð fyrir að efniskaup geti tekið allt að sex mánuði og nemi um 25-30% af kostnaði.
Lagt er til að Vegagerðin noti þetta viðbótarframlag til að flýta framkvæmdum í viðkomandi höfnum þannig að hægt verði að sameina efniskaup og hefja framkvæmdir árið 2016 þar sem mögulegt er. Lögð er áhersla á að leitað verði eftir sameiginlegu tilboði í stálþil vegna þessara framkvæmda."

Hafnarstjórn Grindavíkur fer hér með fram á að Hafnabótasjóði verði gert kleift með viðbótarfjármagni að klára endurnýjun stálþila í fiskihöfnum landsins eins og segir í meirihlutaáliti fjárlaganefndar hér að ofan.

Grindavík, 12. desember 2016


Kristín María Birgisdóttir  Hjálmar Hallgrímsson

forseti bæjarstjórnar formaður bæjarráðs

Ómar Davíð Ólafsson  Sigurður A. Kristmundsson

formaður hafnarstjórnar  hafnarstjóri

3. 1610025 - Grindavíkurhöfn: Gjaldskrá 2017
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að skoða möguleika á því að öllum skipum verði gert skylt sem liggja við bryggju í Grindavíkurhöfn að landtengjast rafmagnsdreifikerfi hafnarinnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að koma með tillögu á gjaldskrá um hvetjandi afsláttakerfi á rafmagnssölu. Þannig leggi Grindavíkurhöfn umhverfinu lið í baráttunni gegn koltvísýringslosun í andrúmsloftið.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 30. maí 2023

Fundur 541

Bćjarráđ / 23. maí 2023

Fundur 1644

Bćjarráđ / 16. maí 2023

Fundur 1643

Frćđslunefnd / 4. maí 2023

Fundur 131

Hafnarstjórn / 8. maí 2023

Fundur 489

Bćjarráđ / 2. maí 2023

Fundur 1642

Skipulagsnefnd / 3. maí 2023

Fundur 119

Frístunda- og menningarnefnd / 3. maí 2023

Fundur 125

Frćđslunefnd / 17. apríl 2023

Fundur 130

Afgreiđslunefnd byggingamála / 19. apríl 2023

Fundur 71

Bćjarstjórn / 25. apríl 2023

Fundur 540

Bćjarráđ / 18. apríl 2023

Fundur 1641

Skipulagsnefnd / 3. apríl 2023

Fundur 118

Frćđslunefnd / 2. mars 2023

Fundur 129

Bćjarráđ / 4. apríl 2023

Fundur 1640

Bćjarstjórn / 29. mars 2023

Fundur 539

Bćjarráđ / 22. mars 2023

Fundur 1639

Skipulagsnefnd / 22. mars 2023

Fundur 117

Bćjarráđ / 22. mars 2023

Fundur 1638

Frístunda- og menningarnefnd / 9. mars 2023

Fundur 124

Bćjarráđ / 8. mars 2023

Fundur 1637

Bćjarstjórn / 1. mars 2023

Fundur 538

Frćđslunefnd / 27. febrúar 2023

Fundur 128

Bćjarráđ / 23. febrúar 2023

Fundur 1636

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023

Fundur 115

Afgreiđslunefnd byggingamála / 16. febrúar 2023

Fundur 70

Bćjarráđ / 15. febrúar 2023

Fundur 1635

Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023

Fundur 114

Bćjarráđ / 8. febrúar 2023

Fundur 1634

Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023

Fundur 123

Nýjustu fréttir

Lokun gatna 2.-4. júní

  • Fréttir
  • 31. maí 2023

Bréfpokar fyrir lífrćnan úrgang

  • Fréttir
  • 31. maí 2023

Nýtt líf í Kvikunni

  • Fréttir
  • 30. maí 2023

Laus kennarastađa á miđstigi

  • Fréttir
  • 30. maí 2023

Ţér er bođiđ í mat

  • Fréttir
  • 30. maí 2023