Góð þátttaka er í norðurlandamótinu í Slither hér í Grindavík. Miðstigsnemendur fengu að koma á bókasafnið í dag og keppa og unglingastigið má koma á morgun föstudag.
Laugardaginn 19. nóvember verður bókasafnið opið fyrir almenning frá 12-16 og boðið verður upp á borðspil og iPada til að hægt verði að keppa í Slither.io
Sjá hér: Nordic game day á bókasafninu
Hægt er að láta fara vel um sig á bókasafninu eins og meðfylgjandi myndir sína.