Allt frá árinu 1970 hefur Sjómannadagsráð Grindavíkur viðhaft þann sið að heiðra nokkra aldraða grindvíska sjómenn á sjómannadaginn. Í ár var engin undantekning og voru fimm sjómenn sæmdir heiðursmerki Sjómanna- og vélstjórafélagsins við hátíðlega athöfn sunnudaginn 5. júní. Í ár voru það þeir Einar B. Bjarnason, Guðmundur K. Tómasson, Helgi Theódór Andersen, Sveinn Þ.Ísaksson og Þorsteinn Óskarsson sem hlutu viðurkenninguna.
Grindavíkurbær óskar þessum sjómönnum til hamingju með viðurkenninguna og færir þeim um leið þakkir fyrir þeirra framlag til undirstöðuatvinnuvegs Grindavíkur.
Myndina tók Eyjólfur Vilbergsson, en á henni eru frá vinstri ásamt mökum frá vinstri: Sveinn Þ.Ísaksson, Þorsteinn Óskarsson, Einar B. Bjarnason og Guðmundur K . Tómasson, en Helgi Theódór Andersen átti ekki heimangengt vegna veikinda.