Alls útskrifuðust 19 starfsmenn Grindavíkurbæjar og frá leikskólanum Króki úr grunnmenntun PMTO síðasta miðvikudag. Lokaverkefni starfsmanna voru skemmtilega fjölbreytt og áhugaverð. Grindavíkurbær hefur markað sér þá stefnu að efla færni foreldra í uppeldi barna sinna og unnið að innleiðingu þeirrar stefnu undanfarin ár undir heitinu Foreldrafærni og er PMTO grunnmenntun starfsfólks hluti af því verkefni. Sjá nánar hér.
Þátttakendur voru sammála um að PMTO grunnmenntun hefði komið að frekar eða mjög miklu gagni í starfi þeirra og að þeir myndu mæla með PMTO grunnmenntun við aðra. Nú er um að gera fyrir grunnskólann, íþróttamiðstöðina, leikskólana, félagsþjónustu- og fræðslusvið og frístunda- og menningarsviðs að nýta menntun fólksins til að hafa áhrif á hegðun og samskipti með jákvæðum og markvissum hætti og miðla þekkingu sinni til fleiri aðila.
Hluti af innleiðingu PMTO og foreldrafærni er að hitta PMTO grunnmenntunarfólk reglulega til að viðhalda færni og þekkingu með þjálfunarfundum svo aðferðin nýtist sem best. Slíkir fundir eru haldnir annan hvern mánuð og eru nýir aðilar boðnir velkomnir á næsta fund í maí.
Á myndinni má sjá hópinn sem lauk grunnmenntun PMTO síðasta miðvikudag ásamt kennurunum Ingibjörgu Maríu Guðmundsdóttur sálfræðingi og PMTO meðferðaraðila hjá félagsþjónustu- og fræðslusviði Grindavíkurbæjar og Önnu Maríu Frímannsdóttur sálfræðingi og PMTO meðferðaraðila hjá Miðstöð PMTO foreldrafærni.