Leitađ ađ fallegustu görđum Grindavíkur, sendiđ okkur ábendingar

  • Fréttir
  • 4. ágúst 2015

Líkt og undanfarin ár verða Umhverfisviðurkenningar Grindavíkurbæjar veittar núna í lok ágúst. Það er Umhverfis- og ferðamálanefnd sem hefur umsjón með þessu verkefni en saga þess nær aftur til ársins 1991. Nefndin óskar eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega jafnt sem áhugaverða garða, um fallega og vel heppnaða endurbyggingu á gömlu húsi og einnig ábendingum um snyrtileg fyrirtæki.

Þá verða einnig veitt verðlaun fyrir fallegasta tréð í samvinnu við Skógræktarfélag Grindavíkur og er einnig óskað eftir tilnefningum í þeim flokki.

Hægt er að koma ábendingum á framfæri með því að senda upplýsingar á umsjónarmann opinna og grænna svæða, Hjalta Guðmundsson - bassi@grindavik.is, á upplýsingafulltrúa Grindavíkurbæjar, Siggeir F. Ævarsson - siggeir@grindavik.is, eða með því að hringja í síma 420 1100. Einnig er tekið við tilnefningum í gegnum Facebooksíðu bæjarins.

Lesa má um umhverfisverðlaunin 2014 hér.
Listi yfir verðlaunahafa frá upphafi er hér.

Mynd: Wikimedia Commons


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 1. desember 2023

Útsvarshlutfall ársins 2024

Fréttir / 30. nóvember 2023

Áćtlun um rútuferđir

Fréttir / 29. nóvember 2023

Opnun Grindavíkurhafnar

Fréttir / 24. nóvember 2023

Frekari rýmkun, flutningur stćrri hluta

Fréttir / 23. nóvember 2023

Aukaferđ á leiđ 55 kl.7:05 frá BSÍ ađ FS

Fréttir / 22. nóvember 2023

Til upplýsinga fyrir íbúa Grindavikur.