Georg Sterkasti mađur á Íslandi 2014

  • Fréttir
  • 6. júní 2014

Georg Ögmundsson ber titilinn Sterkasti maður á Íslandi 2014 eftir að hafa unnið keppnina á Sjóaranum síkáta um helgina eftir æsispennandi einvígi við Pál Logason. Aðeins munaði einu stigi á þeim félögum. 

Keppt var í 8 greinum bæði laugardag og sunnudag og létu kapparnir votviðrið engin áhrif hafa á sig. Georg vann fjórar greinar og Páll fjórar og voru yfirburðir þeirra talsverðir.

Lokastaðan varð þessi:
1 Georg Ögmundsson 62,5 stig
2 Páll Logason 61,5, 
3 Úlfur Orri Pétursson 52
4 Skúli Ármannsson 46
5 Fannar Smári Vilhjálmsson 42,5
6 Charlie Pajak 39,5
7 John Russell 31
8 Birgir Guðnason 20
9 Árni Bergmann 10

Fleiri myndir má sjá hér.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir