423. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, mánudaginn 9. desember 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Páll Jóhann Pálsson formaður, Hilmar E Helgason varaformaður, Pétur Már Benediktsson aðalmaður, Bergþóra Gísladóttir aðalmaður, Eiríkur Óli Dagbjartsson aðalmaður og Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri.
Dagskrá:
1. 1312003 - Sjóvarnir 2013
Lagt fram til kynningar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að meta þörf fyrir sjóvarnir í landi Grindavíkur í samvinnu við sviðstjóra skipulags - og umhverfismála.
2. 1312008 - Beiðni um flutning á löndunaraðstöðu Þorbjarnar hf. við Grindavíkurhöfn
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur hafnarstjóra að gera kostnaðaráætlun á fyrirhugaðri löndunaraðstöðu.
Hilmar Helgason og Eiríkur Dagbjartsson viku af fundi við afgreiðslu málsins
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.