Jón Júlíus ráđinn framkvćmdastjóri UMFG

  • Íţróttafréttir
  • 21. febrúar 2020

Jón Júlíus Karlsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélags Grindavíkur og var hann valinn úr hópi 17 umsækjenda. Jón Júlíus er 32 ára gamall og hefur síðustu þrjú ár starfað sem framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Aftureldingar í Mosfellsbæ.  Hann kemur því með mikla reynslu í þetta nýja starf hjá Ungmennafélagi Grindavíkur.  

Aðalstjórn og stjórnarmenn deilda UMFG binda miklar vonir við að ráðning Jón Júlíusar muni enn frekar styrkja og efla hið öfluga starf sem unnið er innan deilda Ungmennafélagsins. „Ég er mjög þakklátur fyrir þetta tækifæri og fer með mikilli tilhlökkun inn í nýtt starf hjá félaginu. Ég sem Grindvíkingur ber miklar taugar til UMFG og vona að ég geti hjálpað því frábæra fólki sem hefur unnið að íþróttamálum í Grindavík undanfarin ár,“ segir Jón Júlíus.
„Grindavík er íþróttabær og býr yfir einni bestu íþróttaaðstöðu á landinu. Það eru tækifæri til að gera enn betur og ég finn vel fyrir kraftinum og metnaðinum sem ríkir innan sveitarfélagsins til að vera í fremstu röð.“

Jón Júlíus er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Jón Júlíus er uppalinn í Grindavík en hefur síðustu 10 ár búið í Reykjavík.  Jón Júlíus hyggst flytjast búferlum aftur til Grindavíkur þegar hann hefur störf hjá UMFG. Hann hefur áður starfað sem markaðsstjóri hjá Golfklúbbnum Oddi og einnig starfað í fjölmiðlum hjá RÚV, Stöð 2 og Víkurfréttir.

Jón Júlíus mun hefja störf þann 1. júní næstkomandi.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Jón Júlíus og Bjarni Már Svavarsson formaður UMFG skrifuðu undir starfsamning framkvæmdarstjóra. Við óskum bæði Jóni Júlíusi og UMFG til hamingju með ráðninguna! 
 


Deildu ţessari frétt

A?RAR FR?TTIR

Íţróttafréttir / 23. júní 2020

Körfuboltaskóli UMFG 2020 ađ hefjast

Íţróttafréttir / 28. apríl 2020

Körfuboltaćfingar hefjast aftur mánudaginn 4.maí

Íţróttafréttir / 9. mars 2020

Matthías Örn Íslandsmeistari í pílukasti

Íţróttafréttir / 21. febrúar 2020

Herrakvöld í Gjánni í kvöld

Íţróttafréttir / 19. febrúar 2020

Framhalds ađalfundur Knattspyrnudeildar Grindavíkur

Íţróttafréttir / 12. febrúar 2020

Grindavík áfram í bikarúrslitaleikinn

Íţróttafréttir / 11. febrúar 2020

Miđasala á bikarleikinn stendur sem hćst

Íţróttafréttir / 4. febrúar 2020

Til stuđningsfólks Grindavíkur í körfuknattleik

Íţróttafréttir / 31. janúar 2020

Grindavík tekur á móti Fjölni í kvöld kl. 18:30

Íţróttafréttir / 30. janúar 2020

Sylvía Sól valin í U-21 árs landsliđshóp LH 2020

Íţróttafréttir / 24. janúar 2020

Actavismót Hauka

Íţróttafréttir / 2. janúar 2020

Skiptir máli ađ gefa til baka

Íţróttafréttir / 31. desember 2019

Hrund og Jón Axel íţróttafólk Grindavíkur 2019

Íţróttafréttir / 10. desember 2019

Körfuknattleiksdeildin býđur upp á alţrif á bílum

Íţróttafréttir / 14. nóvember 2019

Ray Anthony ţjálfar stelpurnar áfram

Íţróttafréttir / 7. nóvember 2019

Jón Axel er á sögufrćgum Naismith lista

Nýjustu fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum vegna íţróttaafreka 2021

  • Íţróttafréttir
  • 11. janúar 2021

Kristinn Pálsson til Grindavíkur

  • Körfubolti
  • 16. maí 2020

Ćfingar óbreyttar um helgina

  • Íţróttafréttir
  • 13. mars 2020

Jón Júlíus ráđinn framkvćmdastjóri UMFG

  • Íţróttafréttir
  • 21. febrúar 2020

Grindavík í úrslitum Geysisbikarsins

  • Íţróttafréttir
  • 14. febrúar 2020

Auglýst eftir styrkumsóknum vegna íţróttaafreka

  • Íţróttafréttir
  • 12. febrúar 2020

Sindri Björnsson til Grindvíkur

  • Íţróttafréttir
  • 6. febrúar 2020

Nýtt íţróttahús vígt og UMFG 85 ára í dag

  • Íţróttafréttir
  • 3. febrúar 2020

Páll Árni sigrađi pílukastiđ á Reykjavíkurleikunum

  • Íţróttafréttir
  • 30. janúar 2020

Vígsla nýrra íţróttasala í Grindavík

  • Íţróttafréttir
  • 29. janúar 2020