UMFG

  • Ţjónusta
  • 16. mars 2009

Ungmennafélag Grindavíkur (UMFG) var stofnað 3. febrúar 1935 en hét þá Íþróttafélag Grindavíkur en var breytt í UMFG 1963 eftir að hafa legið í dvala um hríð. Malarvöllurinn, þar sem nú er aðalvöllur félagsins, var tekinn í notkun 1948. Knattspyrnulið UMFG tók fyrst þátt í deildarkeppni 1969 og vann sér fyrst sæti í úrvalsdeild 1994 og lék sama ár til úrslita um bikarmeistaratitilinn. UMFG hefur leikið í efstu deild síðan þá, ef undan er skilið 2007. Bylting varð haustið 2008 þegar opnað var nýtt fjölnota knattspyrnuhús. Saga körfuboltans í Grindavík hófst 1957 en körfuknattleiksdeildin var stofnuð 1974. Heimaleikir UMFG voru í fyrstu spilaðir í Njarðvík en bylting varð með nýju íþróttahúsi 1985. UMFG hefur unnið þrjá Íslandsmeistaratitla í karlaflokki og einn í kvennaflokki auk fjölda bikarmeistaratitla. Í UMFG eru nú nú starfandi sex deildir: Knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild, júdódeild, sunddeild, fimleikadeild og taekwondodeild. Einnig tóku nýlega til starfa tvær nefndir, skák- og hjólareiðanefnd.

Aðalstjórn UMFG 2017-2018:

Sigurður Enoksson, formaður - umfg@simnet.is
Rúnar Sigurjónsson, meðstjórnandi - runars@simnet.is
Kjartan Adolfsson, gjaldkeri - kjartan@grindavik.is
Bjarni Már Svavarsson, meðstjórnandi - bjarni@umfg.is
Guðmundur Bragason, varaformaður - gb@sonar.is 

Nánari upplýsingar um einstaka deildir eru á heimasíðu félagsins, www.umfg.is

Netfang UMFG er umfg@umfg.is

 


Deildu ţessari frétt

A?RAR S??UR


Nýjustu fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum vegna íţróttaafreka 2021

  • Íţróttafréttir
  • 11. janúar 2021

Körfuboltaskóli UMFG 2020 ađ hefjast

  • Íţróttafréttir
  • 23. júní 2020

Kristinn Pálsson til Grindavíkur

  • Körfubolti
  • 16. maí 2020

Körfuboltaćfingar hefjast aftur mánudaginn 4.maí

  • Íţróttafréttir
  • 28. apríl 2020

Ćfingar óbreyttar um helgina

  • Íţróttafréttir
  • 13. mars 2020

Matthías Örn Íslandsmeistari í pílukasti

  • Íţróttafréttir
  • 9. mars 2020

Jón Júlíus ráđinn framkvćmdastjóri UMFG

  • Íţróttafréttir
  • 21. febrúar 2020

Herrakvöld í Gjánni í kvöld

  • Íţróttafréttir
  • 21. febrúar 2020

Framhalds ađalfundur Knattspyrnudeildar Grindavíkur

  • Íţróttafréttir
  • 19. febrúar 2020