Skólastjóri er yfirmaður skólans og ber ábyrgð á starfinu sem þar fer fram og er aðstoðarskólatjóri staðgengill hans. Deildarstjórar eru næstu yfirmenn kennara og starfsmannaí sinni deild, stjórna þar daglegu starfi og hafa faglega forystu.
Skólastjórn hittist á reglulegum fundum einu sinni í viku.
Sjá skipurit Grunnskóla Grindavíkur
Skólastjórn Grunnskóla Grindavíkur frá haustinu 2021 skipa:
Föst viðvera skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í Hópsskóla:
Eysteinn skólastjóri: Mánudaga kl. 12:00–16:00 og föstudaga kl. 8:00–13:00.
Guðlaug aðstoðarskólastjóri: Miðvikudaga kl. 08:00-12:00.
Skrifstofa skólans er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 07:45 til kl. 16:00 og föstudaga kl. 07:45 til 15:00.
Skólaritari sér um afgreiðslu ýmis konar, tekur við tilkynningum um forföll (símleiðis og í gegnum tölvu og kemur þeim til skila til kennara. Þurfi kennarar að senda nemendur eftir einhverju á skrifstofuna er gott að hringja til ritara á undan og láta hann vita.
Ritari er ársráðinn og notar sumarið gjarnan til þess að ljósrita námsefni, sem deildastjórar, sérstaklega á yngra stiginu hafa falið honum.
Skólaritari sér um að skrá nemendur í skólann ( setja í námshópa/bekki í samráði við) og halda utan um upplýsingar í Mentor og uppfæra þær að vori.
Skipurit Grunnskóla Grindavíkur skólaárið 2019-2020: