Árshátíð Grunnskóla Grindavíkur fór fram með pompi og prakt síðastliðinn fimmtudag.
Unglingastig skólans byrjaði daginn á því að gæða sér á dýrindis morgunmat sem nemendur skólans höfðu undirbúið ásamt kennurum og starfsfólki. Gaman var að sjá fallegar skreytingar í skólanum sem nemendur og starfsmenn skólans höfðu unnið að. Því næst fór fram sýning á sal þar sem nemendur 8. 9. og 10. bekkja frumsýndu atriði sem ýmist voru leikin eða sýnd á myndböndum. Það var virkilega gaman að sjá afraksturinn hjá nemendum og má með sanni segja að allir hafi skemmt sér vel.
Nemendur miðstigs í 5. 6. og 7. bekk tóku svo við og var virkilega gaman að sjá lifandi sýningar hjá öllum bekkjum en það er augljóst að bæði nemendur og kennarar höfðu lagt mikla vinnu í atriðin.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegar myndir frá árshátíðinni.