Í gær var jólalegi dagurinn hjá unglingastiginu og af því tilefni gerðu nemendur og kennarar sér glaðan dag. Settar voru upp hinar ýmsu stöðvar og var hægt að föndra, spila, púsla, horfa á jólamynd eða horfa á Kahoot.
Krakkarnir skemmtu sér mjög vel og stóðu sig með prýði. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá viðburðinum.