Kæru foreldrar
Birtum hér með hluta úr auglýsingur um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar sem kom frá Heilbrigðismálaráðuneytinu :
3.gr. Leikskólar
Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum að þeim skilyrðum uppfylltum að starfsfólk sem á erindi inn í skólabyggingar gæti að minns 1 metra nálæðartakmörkun sín á milli án þess að andlitgrímur séu notaðar. að öðru leyti eru ekki takmarkanir á samkomum barna á leikskólaaldri.
Viðvera foreldra sem dvelja inn á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun.
Stjónendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra að nota andlitsgrímur í aðlögun.
Aðrir en starfsmenn og foreldrar sem koma inn á leikskóla svo sem vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmökun.
Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa eða sótthreinsa byggingar eftir hvern dag.