Í gærkvöldi kom Ísey EA 40 til hafnar í Grindavík. Aflinn 3.4 tonn þar af um 208 kg. og um 2,5 m bláuggatúnfiskur sem að sögn Grétars Þorgeirssonar skipstjóra veiddist sunnan við Eldey. Í veðurblíðunni í morgunsárið kom til hafnar frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10. En þetta var fyrsti túrinn eftir allsherjar skveringu á millidekki skipins. Aflinn eftir tæplega 3 vikna túr er rúmlega 200 tonn af flökum.